07/04/2023
Horn IV fjárfestir í Styrkás, eignarhaldsfélagi Skeljungs og Kletts
Horn IV slhf., framtakssjóður í stýringu Landsbréfa hf. („Horn“) og SKEL fjárfestingafélag hf. („SKEL“) hafa gert áskriftarsamning að nýju hlutafé í Styrkás ehf. („Styrkás“), eignarhaldsfélagi Skeljungs ehf. og Kletts – sölu og þjónustu ehf. Í samningnum skuldbindur Horn sig til að skrá sig fyrir hlutafé að andvirði 3.500.000.000 kr. og verður við það eigandi að 29,54% af heildarhlutafé félagsins. Kaupverð og fjöldi hluta í viðskiptunum byggir á því að fyrir hlutafjáraukninguna sé samanlagt virði eigna Styrkáss 8.350.000.000 kr. og heildarvirði („Enterprise Value“) 11.200.000.000 kr. Samningurinn er gerður með fyrirvara um niðurstöðu áreiðanleikakannana og samþykki Samkeppniseftirlitsins.
Samhliða áskriftarsamningi hafa aðilar undirritað hluthafasamkomulag þar sem kveðið er á um að framtíðarsýn hluthafa Styrkáss sé að félagið verði leiðandi þjónustufyrirtæki á fyrirtækjamarkaði. Sameiginlegt markmið hluthafa sé að byggja upp samstæðuna þar sem horft verður til ytri vaxtatækifæra á sviði orku og efnavöru, tækjum og búnaði, umhverfi, iðnaði og eignaumsýslu.
Í hluthafasamkomulagi er ennfremur kveðið á um markmið aðila að skrá alla hluti í félaginu á skipulegan markað í Kauphöll á Íslandi fyrir árslok 2027. Í hluthafasamkomulagi er einnig kveðið á um að stjórn Styrkáss verði skipuð fimm aðilum og tveimur til vara. Tveir stjórnarmenn verða tilnefndir af Horni og tveir tilnefndir af SKEL.
Hlutafjáraukningin verður nýtt til að hrinda framtíðarsýn og markmiðum hlutahafa í framkvæmd, þ.e. að byggja Styrkás upp sem enn öflugri samstæðu sem þjónustar ólík svið atvinnulífsins.
Hjá Skeljungi eru að jafnaði 60 starfsmenn og hjá Kletti 120. Forstjóri Skeljungs er Þórður Guðjónsson og forstjóri Kletts er Kristján Már Atlason.
Ráðgjafar Horns í ferlinu eru fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka og LOGOS. Lögfræðilegur ráðgjafi SKEL í ferlinu er BBA // Fjeldco.
Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason, forstjóri SKEL:
Skel fjárfestingafélag er umbreytingafjárfestir. Við kynntum hugmynd að þjónustufyrirtæki við atvinnulífið á grunni Skeljungs og Kletts fyrir u.þ.b. ári síðan og höfum síðan þá unnið að þróun þeirra hugmynda og viðræðna við mögulega samstarfsaðila. Við erum ákaflega ánægð og stolt að hefja samstarf með Horni og Landsbréfum sem hafa reynst farsæl í rekstri framtaksfjárfestingasjóða. Við höfum gefið félaginu heitið Styrkás og munum halda áfram að byggja upp félag sem einbeitir sér að þjónustu við íslenskt atvinnulíf. Við teljum að þar sé tækifæri vegna þess að atvinnulífið allt stendur frammi fyrir miklum áskorunum í uppbyggingu innviða og á sviði orkuskipta.
Hermann Már Þórisson, framkvæmdastjóri Horns IV:
Horn sér mikil tækifæri til frekari innri og ytri vaxtar fyrirtækja á þessum markaði. Framundan er uppbygging innviða og frekari atvinnuvegafjárfesting. Samstarf félaganna í gegnum Styrkás sem hefur það markmið að fjárfesta í og byggja upp fyrirtæki og efla þjónustu við atvinnulífið er spennandi vegferð. Styrkás á tvö öflug og vel rekin félög með sterka innviði og reynslumikið stjórnendateymi með skýra framtíðarsýn. Við hlökkum til samstarfsins með starfsfólki SKEL og Styrkáss á komandi árum.