12/06/2024
Styrkás undirritar samkomulag um kaup á Hringrás
Í dag var undirritað samkomulag um helstu skilmála kaupsamnings milli Styrkáss, TF II slhf. og Hópsnes ehf. um kaup Styrkáss á öllu hlutafé í Hringrás ehf.
Styrkás er þjónustufyrirtæki við atvinnulífið og eru kaupin á Hringrás í samræmi við stefnu félagsins um að byggja upp nýtt kjarnasvið í umhverfisþjónustu en Hringrás er m.a. leiðandi í vinnslu brotajárns á Íslandi. Fyrir rekur Styrkás þrjú kjarnasvið sem einbeita sér að þjónustu við fyrirtæki, þ.e. í orku og efnavöru undir merkjum Skeljungs, tækjum og búnaði undir merkjum Kletts og í eignaumsýslu- og leigustarfsemi undir merkjum Stólpa. Áhersla á endurvinnslu fer ört vaxandi samhliða auknum kröfum um meðhöndlun sorps.
Heildarvirði (e. enterprise value) eignanna sem seldar eru samkvæmt samkomulaginu er 6.300 m.kr. en getur orðið allt að 6.500 m.kr. ef árangursviðmiðum er náð. Kaupverð eigin fjár (e. equity value) mun ráðast af stöðu nettó vaxtaberandi skulda og áætlaðra eftirstöðva fjárfestinga á viðmiðunardegi. Núverandi eigendur Hringrásar eru framtakssjóðurinn TF II í stýringu Landsbréfa og Hópsnes ehf. Allt kaupverð verður greitt með nýjum hlutum í Styrkási. Verð nýrra útgefinna hluta í Styrkási í viðskiptunum miðast við að eiginfjárvirði Styrkás sé 20,47 milljarðar króna. Áætlað er að seljendur eignist á bilinu 9,7-10,7% hlut í Styrkási eftir kaupin.
Hringrás hefur með fjárfestingum á nýju athafnasvæði að Álhellu í Hafnarfirði og í nýjum tækjakosti búið sig vel í stakk til að sinna þörfum um skilvirka endurvinnslu sem mætir ströngustu umhverfiskröfum. Áætlaður hagnaður Hringrásar fyrir afskriftir, skatta og fjármagnsliði er 244 m.kr. árið 2024. Afkoma ársins litast af uppbyggingu á athafnasvæði félagsins en á árinu tók félagið í notkun nýjan fullkominn brotajárnstætara. Auk uppsetningar á nýjum brotajárnstætara hefur á lóð félagsins verið fjárfest í fullkomnum mengunarvörnum og uppbyggingu verkstæðis. Bókfært virði fastafjármuna Hringrásar nemur 6,2-6,4 milljörðum króna að loknum framkvæmdum og eigið fé félagsins er 2,3 milljarðar.
Með flutningi á starfsemi Hringrásar á 50 þúsund fermetra athafnasvæði að Álhellu felst hagræði og með kaupunum opnast frekari möguleikar á samnýtingu aðstöðu með Stólpa Gámum sem er að byggja upp framtíðarstarfsemi sína á aðliggjandi lóð sem er 60 þúsund fermetrar að stærð.
Samkomulagið er meðal annars gert með fyrirvara um gerð áreiðanleikakönnunar, gerð kaupsamnings, endanlegt samþykki stjórnar og hluthafafundar og samþykki Samkeppniseftirlits.
Ásmundur Tryggvason, forstjóri Styrkáss:
„Með kaupum á Hringrás er mikilvægt skref stigið til að útvíkka þjónustu Styrkáss og byggja upp fjórða kjarnann í rekstri félagsins á sviði umhverfisþjónustu. Hringrás er leiðandi í endurvinnslu og umhverfisþjónustu og fjárfestingar undanfarinna ára skapa tækifæri til að þjónusta viðskiptavini með hagkvæmum hætti í takt við ströngustu kröfur. Samvinna með öðrum einingum innan Styrkáss samstæðunnar skapa enn frekari tækifæri til að samnýta aðstöðu og auka skilvirkni. Fjárhagslegur styrkur Styrkáss veitir jafnfamt möguleika til að byggja upp frekari þjónustu á athafnasvæði félagsins í Hafnarfirði. Mikill styrkur er að því að fá núverandi eigendur Hringrásar í stækkandi hóp hluthafa Styrkáss sem hafa með framsýni leitt uppbyggingu Hringrásar og skapað því forystuhlutverk til framtíðar á sviði endurvinnslu.”